Málað með ljósi Tók þessa mynd þegar ég gat ekki sofnað. Stillti á stærsta ljósop sem ég gat valið um, setti lokunarhraðann á 30 sekúndur og teiknaði með vasaljósi með hvítu blaði framan á í hringi alveg frá linsunni og upp að fókusfjarlægðinni (sirka meter). Kom skemmtilegra út en ég bjóst við. Ég átti ekkert við myndina nema að ég kældi litina niður og plástraði aðskotaljós frá tölvunni minni úr.