Elskan Sefur Já, þetta mun vera elskan mín, ein af 3. Þar sem ég er trúleysingi leyfist mér að fjölkvænast ;). Gislinn kom með uppástungu um að taka mynd af klassísku hljóðfæri í svipuðum stíl og ég hef verið að taka, en þar sem ég hef ekki komist í tæri við slík hljóðfæri þá lét ég minn eftirlætis gítar sitja fyrir.

Endilega komið með ykkar álit :).

Myndin er tekin á Canon Digital IXUS 50, 5 megapixla. ISO var stillt á 50 og ekkert flass notað. Unnin aðeins eftir á í Photoshop 7.0.