Þú ert ekki beint að sannfæra mig með þessu svari.
Það er stór hluti af ljósmyndun að þekkja hvernig á að nýta mismunandi birtuskilyrði til að ná fram flottum myndum og að afsaka sig með að það væri skýjað er ekki alveg að virka…
Reyndu bara næst að miða lýsingu við himininn og ef það er of mikill munur á himninum og jörðinni þá geturðu notað þrífót og tekið tvær myndir og sett þær saman í photoshop til að fá rétt lýstan himinn og jörð.