mig langar svolítið að fara að prófa mig áfram í ljósmyndun
hvernig gerðuð þið þetta, fóruð þið á námskeið eða prófuðuð þið ykkur áfram með hjálp veraldarvefsins? :) og ef þið fóruð á námskeið, er eitthvað námskeið sem þið mælið sérstaklega með?

og keyptuð þið ykkur strax svona fína og flotta myndavél á 250þúsund? er eitthvað möst að eiga þannig? mamma mín á svona rosa flotta canon eitthvað, ég er ekki að sjá að ég muni eiga efni á svoleiðis myndavél á næstunni svo það væri fínt að geta sloppið við það