Mig langar að búa mér til mitt eigið stúdíó, bara svona lítið þar sem ég get tekið myndir, ekkert dýrt eða þannig.
En ég er með eina pælingu, það er misjafnt eftir hvaða efni og hvaða litir draga í sig ljós og þannig.
Mig langar að vita hvað ég gæti notað sem gæti gert myndirnar sem flottastar, semsagt hvernig efni og hvaða liti ég ætti að nota?
Ég get nú ekki byggt heilt stórt stúdíó, mig vantar bara smá lítið stúdíó sem ég get tekið myndir í, ef þið skiljið mig (: