Ég hef rosa mikinn áhuga á ljósmyndun og langar að læra hana. Ég get fengið mjög góða vél lánaða hvenær sem ég vill en vandamálið er að ég veit ekki hvernig á að byrja. Ég hef auðvitað farið út og tekið fullt af myndum en ég kann lítið sem ekkert á vélina sjálfa, svo sem flassið og aðrar stillingar, hvernig er best að taka myndir eða hvernig á að myndvinna myndirnar.

Getur einhver gefið mér tips eða ábendingar hvernig best væri fyrir mig að byrja, hvað þarf ég fyrst að læra og svo framveigis. Vil taka það fram að ég bý fyrir norðan þannig að ég hef voða fá tækifæri til þess að fara á námskeið og þess háttar.

Með fyrirfram þökkum.