Ljósmyndasýningin Okkar sýn á Ísland opnar laugardaginn 7. júní næstkomandi í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.

Á sýningunni eru ljósmyndir eftir Hallstein Magnússon, Pálma Bjarnason, Sigrúnu Kristjánsdóttur og Skúla Þór Magnússon sem mynda hópinn Ljósbrot. Sýningin er haldin í tilefni útgáfu samnefndrar ljósmyndabókar Ljósbrots sem kemur út á sex tungumálum um þessar mundir.

Sýningin opnar kl. 14 laugardaginn 7. júní og verður opin alla daga vikunnar á opnunartíma Ráðhússins til sunnudagsins 22. júní.