Ég sá að það var bara ein mynd í bið og ákvað að senda inn allavega eina mynd. Minnkaði hana í rétta stærð og sendi inn. Nei, þá kemur upp að hún sé of stór. Ég fer og minnka hana aftur, tékka á því að ég hafi ekki gert einhverja vitleysu. En allt kemur fyrir ekki. Hugi vill bara ekki leyfa mér að senda inn. Svo minnkaði ég hana ennþá meira að minnkaði qualityið þannig að hún er örugglega ekki of stór (í kb þá). Nei, það virkar bara ekki neitt. Ég prófaði að senda inn örugglega 10-15 sinnum og gafst svo bara upp.

Mér finnst ekkert skrítið þótt það sé bara ein mynd í bið. Ekki nenni ég lengur að setja myndir hingað inn.

Haldið þið að það sé ekki hægt að gera eitthvað í þessu? Ég meina, ég hef sent inn mjög fáar myndir einmitt af því mér tekst aldrei að senda inn fyrr en í a.m.k. fimmtu tilraun. Hef bara fengið nóg af því.


Afsakið nöldrið í mér. Ég veit að þetta hefur komið áður …