Ég er alveg sammála þér jonr, þetta er rosa flott form :0)

Þessi blessaði brunastigi er greinilega mjög vinsælt myndefni :0) Ég gat ekki annað en hlegið þegar ég sá þessa mynd. Ég tók næstum því alveg eins mynd fyrir nokkrum árum… reyndar svart-hvíta og ég stóð kannski ekki á nákvæmlega sama blettinum :0)

Og ég var sko alls ekki sú fyrsta til að taka svona mynd… ég mætti voða hreykin í tíma með myndina sem ég var nýbúin að stækka en áður en ég sýndi kennaranum hana dró hann upp myndir sem nemendurnir árið áður höfðu skilið eftir :0) nákvæmlega sama myndin takk… mér leið eins og algjörri hermukráku :0)
Það er s.s. satt sem kennarinn var alltaf að segja okkur - það er búið að taka allar myndir (mála allar myndir og semja öll lög) við bara gerum þetta í okkar útgáfu! :0)

ekki samt misskilja mig - ég er ekki að dissa myndina þína jonr.