Þannig er mál með vexti að við fjölskyldan pöntuðum 400D frá bandaríkjunum (eða Digital Rebel XTi eins og hún heitr þarna úti) og ég skellti kortinu í hana og svona skoðaði og þannig, síðan þurfti ég að skjótast út. Síðan þegar ég kem til baka þá hefur litli bróðir minn tekið kortið úr og reynt að setja í aftur á vitlausan hátt eða eitthvað og þannig beiglað einn vírinn, á fyrsta kveldinu! :@ Þannig spurning mín er… Hvar er hægt að láta laga svona?

Bætt við 23. janúar 2007 - 13:30
er á akureyri