Það er málið að það er kominn snjór og ég hef farið út og reynt að taka mynd af þessum smekklega snjó sem hefur látið ljós sitt skýna þessa dagana. En málið er að hann verður eitthvað alltaf svo grár og leiðinlegur þegar hann er kominn inn í vélina. Snjórinn grár á myndinni þið skiljið. Ég er búin að fikta eins mikið og mín litla þekking getur og ég næ ekki að fá hann hvítari.
Veit ekki hvort ég næ að koma þessu nægilega skýrt frá mér en allavega…

Er einhver hérna svo ljúfur að geta hjálpað ungri stúlku í neyð:).