Mig langar í rauninni bara að segja frá gömlu myndavélinni minni sem ég nota reyndar varla lengur því að nú á ég miklu dýrari græju!!
Mamma mín átti þessa myndavél, svo fékk pabbi hana þegar að það komst í ljós að mamma tók ekki mikið af myndum og fyrir 2 eða 3 árum fékk ég hana og notaði hana í hverju einasta ferðalagi.
Þessi myndavél er mjög gamaldagsleg og er alveg að detta í sundur. Hún lýtur þannig út að maður heldur varla að það sé hægt að taka mynd á henni.
Hún er samt alveg ótrúlega surprising og tekur oft frábærar myndir. Margar af þeim myndum sem ég hef sent inn á þetta áhugamál koma frá þessari myndavél. Ég er samt allra ánægðastur með myndina mín að Heklu sem ég held að sé fyrsta myndin sem ég sendi inn á Ljósmyndun. Ég veit ekki hvort þið nenni að leita að henni en mér finnst það bara ótrúlegt að ég skuli hafa tekið þessa mynd á þessari gömlu græju.

Kv. StingerS