www.smafolk.net … kíkjið á okkur !!! ;)

Smá-fólk er verkefni sem við systkynin, David & Kristín Terrazas, réðumst í vegna áhuga okkar á list, ljósmyndun og börnum. Við sérhæfum okkur í ljósmyndun á ungabörnum og upp í táningsaldur á mjög hagstæðu verði. Okkar sérstaða eru ævintýra og listrænar myndir sem reynast ómetanleg listaverk og minningar um æsku og uppvöxt barnanna.
Ætlunin er að sýna brot af verkum okkar hér á heimasíðunni ásamt þeim vörum sem við bjóðum upp á en það er m.a. málverk, úrklippubækur og barnastólar með handmáluðu listaverki á, mynd af barninu, nafni þess eða skírnardegi.

Heimasíðan er í vinnslu og munum við reyna að vera dugleg við að bæta nýju efni inn á hana þannig að það er um að gera að heimsækja okkur reglulega og hafa samband ef áhugi vaknar fyrir einhverju af því sem við bjóðum upp á!