ég er strákur með mikinn áhuga á ljósmyndum og er búinn að hafa hann núna í 3 ár. ætla mér að vera ljósmyndari þegar ég er orðinn stór. alltaf að taka myndir og hef meira að segja unnið verðlaun fyrir ljósmynd. er búinn að kaupa mér þokkalega góða cameru sem hentar mér vel. hún er reyndar aðeins of hægvirk. núna langar mig til þess að kaupa mér þrífót. held að það geri myndirnar mínar miklu betri. langar að kaupa einhvern góðan þrífót. veit samt ekkert um þrífóta. hvernig þrífót er mælt með ? hvaða atriði ber að hafa í huga við kaup á þrífót ? hvaða merki eru góð og svo framvegis. vonandi getur einhver hjálpa mér því ég veit ekkert hvað ég á að kaupa.