Það eru nokkur einföld trikk til þess að láta myndina lifna við.
Autolevels eða auto-colors. Mjög einfalt og auðvelt. Canon vélar eiga til að búa til myndir sem eru dáldið “dull” áður en að levelinn eru löguð, Photoshop er ansi naskt á að fatta hvernig best er að stilla levelinn.
Hægt er að beita tveimur aðferðum til þess að auka skerpu myndarinnar.
UnSharp Mask er önnur og hefur virkað vel fyrir marga.
Önnur aðferð er til og hef ég notað hana með góðum árangri þegar ég hef prentað myndir.
1. Hægrismelltu á layerinn og veldu duplicate.
2. Veldu síðan High Pass, fiktaðu í hlutfallinu þangað til að þér líkar við það sem þú sérð.
3. Veldu síðan “Soft Light” til þess að láta þá renna saman.