Gott kvöld, ég er ungur nemi með mikinn áhuga á ljósmyndun, og langar mjög mikið til þess að fá mér vél sem eitthvað er varið í.
Vandamálið er einfalt; skortur á fé. Eins og aðrir menntamenn, geng ég í skóla og þarf auðvitað að borga með foreldrum mínum í honum. Þetta orsakar að ég get ekki eytt miklum pening. Þess vegna langar mig til þess að biðja ykkur um að benda mér á verslun þar sem ég get fengið sæmilega myndavél og þarf ekki að borga gífurlega mikið fyrir hana. Einnig væri mjög fínt ef einhver hér á notaða, góða vél, en ég vill þó ekki fara að eyða hrikalega miklum pening í myndavél, aðallega vegna þess að ég á ekki mikinn pening.

-Gummi