Þetta er alltof dýrt, maður. Ég er núna með einhverjar fjórar filmur eða eitthvað sem ég þarf að framkalla og ég get ekki hugsað mér að borga þúsundkall fyrir hverja filmu. (Ég var í Suður-Evrópu í sumar og er kannski ennþá með verðin dáldið í hausnum, þar var hægt að fá frammköllun fyrir 4 evrur. Meðal verð var samt svona 7-8 evrur (700 kall!))
Ef ég hefði pláss þar sem ég á heima mundi ég koma mér upp myrkraherbergi heima, en ég kem því ekki fyrir. Ég hef mikinn áhuga á ljósmyndun og mig langar að læra mikið og framkalla og allt. Ég er ennþá svona frekar á byrjenda-leveli.
En ef einhver er með myrkraherbergi sem hann er til í deila með öðrum (jafnvel kenna mér smá og jafnvel gegn smá gjaldi) ENDILEGA látið mig vita. Ég á heima í Hafnarfirði.
Komið samt endilega með allar tillögur.
Líka ef þið hafið einhverjar aðrar hugmyndir handa mér.

Takk fyrir!
Foo.<br><br>ég er bara ég. þú ert bara þú. hver er orginal?
ég er bara ég. þú ert bara þú. hver er orginal?