http://www.sonystyle.com/is-bin/INTERSHOP.enfinity/eCS/Store/en/-/USD/SY_DisplayProductInformation-Start;sid=3gLCxhpRtQ3C2yUHW6TIzVVfAgr-h6nLRWY=?ProductSKU=DSCP32KITIS&Dept=dcc&CategoryName=dcc_DIDigitalCameras_Cyber-shotDigitalCameras

Ég er með þessa vél og ég er ekki sáttur og er að vona að þetta sé einhver stilling eða eitthvað. Ég vann þessa vél í einhverj leik þannig að ekki koma með eitthvað “þessi vél suckar”.

Málið er það að hún er geðveikt lengi að taka myndir, Þegar maður ýtir á takkan þá er hún svona 3-5 sek að taka myndina. Eða réttar sagt þangað til flassið kemur. Þetta er mjög pirrandi vegna þess að ég er mjög oft að nota hana til þess að taka myndir á djamminu og það er frekar ömurlegt að vera að ota myndavélinni og fólk kemur með pósur síðan er vélin svona lengi að taka mynd.

Ég veit að þetta er eitthvað svona Ljósmyndum dæmi hérna, ekki koma með neitt bögg please..

Kv Jökull