Halló, ég var að velta því fyrir mér hvort að það mætti ekki lífga aðeins uppá þetta blessaða áhugarmál með því að hrinda ýmsum ágætum hugmyndum sem hingað hafa borist í framkvæmd.
Þá er ég að tala um hugmyndir eins og að hafa svokallað þema stundum eins og RaggiS stakk uppá. Þemað væri kannski einu sinni hringur og þá ættu allir að taka mynd sem mynnti þá á hring og senda svo inn. Svo finnst mér að það ætti að vera hægt að gefa komment á myndir sem eru sendar inn.
Og síðast og ekki síst ætti hugmynd sem hefur legið ansi lengi á teikniborðinu hjá stjórnendum þessa áhugarmáls. Það er það að atvinnuljósmyndarar svari ýmsum spurningum gagnvart ljósmyndun. Að auki er ýmislegt fleira sem hægt væri að gera en mér þætti gott ef það yrði eitthvað gert.

TakkFyrirEgiLL