Hversu stór hluti þeirra sem les þessa síðu tekur meira á stafrænar vélar en filmuvélar?

Það væri gaman að heyra um þetta og þá líka hverjir hafa farið í að vinna filmumyndirnar sínar með stafrænum hætti.

Sjálfur á ég hvorttveggja, en mér finnst filman alltaf hafa eitthvað framyfir. Ég hef þó áhuga á að koma filmumyndunum mínum í stafrænt form. Þess vegna væri líka gaman að fá vitneskju um með hverju þið mælið í því sambandi.