Hæ, mig langar að biðja ykkur að aðstoða mig við kaup á myndavél. Þar sem ég er fátækur námsmaður og langar í myndavél sem ég get tekið myndir af nánast öllu; íþróttafólki, náttúrunni, flottum og/eða skrýtnum mannvirkjum í nánast hvernig birtu sem er. Ég á nefninlega alveg hræðilega myndavél, myndir sem ég tek úr fjarlægð koma mjög illa út. Þess vegna langar mig að heyra eitthvað um myndavélar frá ykkur, mig langar að fá sæmilega myndavél á góðu verði. Það er ekki langt síðan ég fékk áhuga á ljósmyndun og þess vegna veit ég voðalega lítið um myndavélar, gæði, merki og slíkt.

Með fyrirfram þökkum fyrir aðstoðina, kveðja, gjons.