Nú er kominn tími til að láta ljós sitt skína og komast að því hvort að ljósmyndirnar þínar séu virkilega eins góðar og þér finnst sjálf/ur. Núna á laugardaginn síðasta (1.des) hófst ljósmyndasamkeppni sem allir geta tekið þátt í. Það er <a href="http://www.ljosmyndari.is“ target=_blank>Ljósmyndari.is</a> sem stendur fyrir þessari samkeppni og má hver þáttakandi senda inn 3 myndir. Myndirnar verða að vera ca. á bili 50 - 150 kb og er hægt að senda þær á <a href=”mailto:ljosmyndari@ljosmyndari.is“>ljosmyndari@ljosmyndari.is</a>. Hægt er að senda inn myndir til 23. desember og strax eftir jól verður hægt að kjósa hvaða mynd þér finnst best. Þrjár stigahæstu myndirnar verða svo verðlaunaðar.

Ef þú sendir inn mynd þá verður þú að láta fylgja með upplýsingar um höfund myndar, tökustað og tíma, myndavélategund og filmu.

<a href=”http://www.ljosmyndari.is/ljosmyndakeppni.htm">Ljósmyndasamkeppni</a>

Heimild: www.ljosmyndari.is