Það er allt morandi í keppnum hérna, en hvað um það.

Í ljósi þess hversu ljótur bannerinn hér er hef ég ákveðið að efna til bannerkeppnar.

1. Bannerinn á að vera 245x54 pixlar.

2. Mælst er til þess að notendur ræni ekki myndum af netinu og noti í bannergerð nema það sé frá svokölluðum stock síðum sem gefa leyfi til þess.

3. Senda skal bannerinn á myndakubbinn undir nafninu “Notandi - Banner”

4. Notandi má senda inn eins marga bannera og hann vill. (muna að númera þá: banner1, banner2)

5. Hafið bannerana í .gif formi.

Það er enginn ákveðinn lokaskiladagur en ég mun þó bjalla í ykkur nokkrum dögum áður en ég set upp kosningu ef einhver gleymdi sér en vill taka þátt.