Þriðja vika ljósmyndasamkeppninnar gaf nú ekki jafn vel af sér og önnur vikan, en fjórar myndir bárust.

Verkefni vikunnar er "Hraði".

Að þessu sinni er fresturinn fram á mánudaginn 8. ágúst kl.18:00, en hægt er að senda inn myndir þangað til. Munið að myndirnar birtast ekki fyrr en eftir að fresturinn rennur út. Á miðvikudag birtist svo könnun þar sem myndum skal gefið atkvæði.

Munið bara að láta myndina heita “Hraði - nafn_myndarinnar” og hafið með í lýsingnni á hvernig vél hún er tekin og hvort er búið að vinna hana eitthvað.

Það má senda inn eins margar myndir og maður vill.
Skoðanir Octavo eru hans eigin og gætu því stangast á við skoðanir annarra á Huga. Þér er velkomið að: