Ok, ég hef aldrei tekið neinar myndir nema bara fjölskyldumyndirnar góðu. Ég er semsagt að senda þetta inn hérna því að ég er að dunda mér við að teikna og mála í frístundum og er núna að prófa ljósmyndunina í bland, að mála til dæmis módel (vinkonur mínar eru oftast fórnarlömbin), og til dæmis mála marbletti og gera gervi sár með gerviblóði og svoleiðis á þær :P mjög fallegt hehe, en já ég var að spá í hvort ég gæti fengið einhverjar ráðleggingar í sambandi við val á myndavélum og stillingar á þeim og fleira svoleiðis…

Og ef einhver sem les þetta hefur áhuga á einhverskonar förðun, þá endilega að skiptast á ráðleggingum

Vona að einhver svari þessu :P

—-
Ég geri mér grein fyrir því að þetta hefði átt að fara á kork en þar sem mikill skortur er á greinum hérna ákvað ég að gera undantekningu.

Reynum að ráðleggja stúlkunni eitthvað.
-Octavo