Ljósmyndasamkeppni Til að lífga upp á áhugamálið datt mér í hug að halda ljósmyndasamkeppni.

Þema fyrstu myndarinnar er “merki”.

Myndir skal senda inn á venjulegan hátt fyrir klukkan 20.00 á föstudag og merkja þær “Ljósmyndasamkeppni”, í lýsingu skal svo vera nafn myndarinnar, á hvernig vél hún er tekin og hvort búið er að breyta henni eitthvað.

Notendur gefa svo myndunum stig frá 0-10 í athugasemdakerfinu.
Skoðanir Octavo eru hans eigin og gætu því stangast á við skoðanir annarra á Huga. Þér er velkomið að: