Það er eitt hérna sem notendur ljósmyndaáhugamálsins hafa verið að biðja um frá því að ég byrjaði að fylgjast með hérna og það er að einhver áskorun sé í gangi eða einhver keppni. Taldi ég því víst að amk 10 manns myndu taka þátt í svona vikulegri samkeppni þó engin verðlaun séu sem slík. Nú hefur slík áskorun verið í gangi í 2 mánuði og aldrei fleiri en 5 aðilar tekið þátt í einu, þó oftast aðeins 1-2 notendur. Vil ég því nota tækifærið og benda þeim sem voru ekki búnir að taka eftir því að þessi áskorun sé til
að hún er til staðar á
http://digital.kcg.is

Og fyrir þá sem voru búnir að biðja um þetta að fara nú að virkjast í þessu starfi og taka þátt. Á miðnætti 1.okt fer ný áskorun af stað. Hvet ykkur eindregið til að taka þátt og prufa.