Hér er ein hugmynd til að lífga upp á þetta áhugamál. Ég þarf að fá smá input áður en ég set þetta í gang. Hugmyndin er þessi:
Ég er að spá í að hóa í nokkra þekkta íslenska ljósmyndara í gegn um tölvupóst, ég veit ekki hverja eða hversu marga, en er að vona að ná amk 3-5. Síðan sendið þið inn spurningar, ég safna þeim saman, og sendi þeim í pósti. Þeir myndu síðan svara spurningum við tækifæri. (Gefum þeim nú amk viku) og síðan myndi ég pósta spurningum og svörum hérna sem grein.
Þannig að svörin við þessari grein yrðu upphafið. Ef ég fæ nógu margar gáfulegar spurningar, OG fæ þessa 3-5 ljósmyndara til að vera með, þá gæti þetta orðið svolítið fræðandi. NB. ég sendi póst fyrst til manna og spyr hvort þeir væru til í að svara svona spurningum, en dembi ekki bara spurningalista í pósti til þeirra! :)
Ég ætla bara að láta þessa grein nægja, í staðinn fyrir að 2 í viðbót, þar sem þið mynduð koma með tillögur um ljósmyndara og spurningar.
Þannig að ég ætla að biðja ykkur að koma bara með þetta allt saman í einum hrærigraut, bæði spurningar og tillögur um ljósmyndara.
Hafið þó eitt í huga, Ef þið sjáið að búið er að nefna ljósmyndara, sem þið vilduð sjá svara spurningum, endilega nefnið hann líka, svo ég sjái hverjir eru vinsælastir.
Og látið svo spurningarnar flæða! :)