kristalnótt
af plötunni lof mér að falla að þínu eyra.

haltu þér fastar í mig,
við erum ekki enn fullkomlega samvaxin.
haltu þér fastar í mig,
og ég skal reyna að hafa vit fyrir okkur báðum.
ég skal gefa þér gull, silfur og völuskrín.
gefa þér allt og alla sem þarfnast þín,
ég myndi gefa þér allan heiminn, væna!
ef þú næðir utan um hann.
haltu þér fastar í mig,
kysstu mig fljótt haltu í mér síðasta andanum.

en ef þú sleppir, missir takið,
verður það sem hamarshögg á kristalnóttu.
þar sem flísar fljúga og sökkva í augun sem blóðtár.
og ef þú vilt þá skal ég ljúga að þér:
“ já ,ef þú vilt þá skal ég standa hér kyrr
og eitt, já aðeins eitt, ég vil aldrei enda aleinn ”.

hertu tak þitt á mér,
því ég get enn andað með herkjum.
hertu tak þitt á mér,
það er ekki auðvelt að fella saman lungu.

en ef þú sleppir, missir takið,
verður það sem hamarshögg á kristalnóttu.
þar sem flísar fljúga og sökkva í augun sem blóðtár.
og ef þú vilt þá skal ég ljúga að þér:
“ já ,ef þú vilt þá skal ég standa hér kyrr
og eitt, já aðeins eitt, ég vil aldrei enda aleinn ”.

en hér er lífið sem ég þráði, hér er allt það sem ég dái,
skildu mig eftir einan,
skildu mig eftir einan vina, inn í kristalnótt.