gagnkynhneigð eða samkynhneigð
frjálshyggja eða íhaldsemi
lauslæti eða skírlífi
…við ættum að viðurkenna bæði

blökkumenn eða hvítir menn
karlpungur eða kerlingarskass
naumhyggja eða auraþrá
…við ættum að viðurkenna bæði

múslimar eða gyðingar
búddistar eða kristnir menn
Allah, Jesú, Búdda eða Jahve
…við ættum að viðurkenna bæði

heimspeki eða stærðfræði
ljúfmennska eða skapbræði
konungar eða lýðræði
gallar eða gæði
…við ættum að viðurkenna bæði

því við byrjuðum öll
sem eitt egg
og eitt sæði..




Bara að prófa þetta, spurning um að hafa hér áhugaverð ljóð notenda sem og aðra utanaðkomandi texta.
—–