Hér er annað meistaraverk eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, Konan, sem kyndir ofninn minn.

Hér er á ferð mannlýsing, lýsing á karakter sem vonandi aldrei deyr, heldur fær sín laun á endanum. Án þessa karakters værum við ekki vel sett í þessum heimi og kannski, ef þið eru heppin, finnið þið þennan einstakling, sem er ekki hægt að vera án en er samt alltaf í skugganum.


Eg finn það gegnum svefninn,
að einhver læðist inn
með eldhúslampann sinn,
og veit, að það er konan,
sem kyndir ofninn minn,
sem út með ösku fer
og eld að spónum ber
og yljar upp hjá mér,
læðist út úr stofunni
og lokar á eftir sér.

Eg veit, að hún á sorgir,
en segir aldrei neitt,
þó sé hún dauðaþreytt,
hendur hennar sótugar
og hárið illa greitt.
Hún fer að engu óð,
er öllum mönnum góð
og vinnur verk sín hljóð.
Sumir skrifa í öskuna
öll sín bestu ljóð.

Eg veit, að þessi kona
er vinafá og snauð
af veraldlegum auð,
að launin, sem hún fær,
eru last og daglegt brauð.
En oftast er það sá,
sem allir kvelja og smá,
sem mest af mildi á.
Fáir njóta eldanna,
sem fyrstir kveikja þá.