Ég dregst inní rúðuna
Öll vandamál mín leysast í gegnum mávana
Þeir hafa svörin
Bláa hárið strýkur mér um kinn
Leggst á jörðina og verður að bláu lóni
syndi í hárinu
[Þar fann ég þig
Þig með bláu augun
Eins blá og bláa hárið
Og freknóttar kinnar sem kitla
Þú ert á Evuklæðunnum, nakin, án spjarar
Ég tek eftir því að það er ég líka
Við erum villidýr í vatninu
Vatninu sem var úr hári
Hárinu sem varð að vatni
Er þetta nútíð, fortíð eða framtíð?
Það veit ég ekki, veit bara
Að það er gott að hafa þig í örmum mínum