Maður með vindil gengur út…
Tíminn er bein lína þegar vel gengur..
Annars hvít lirfa sem bítur sig í rófuna.
Man þegar sérhvert x átti sér aðeins eitt y.

Framtíðin kom aldrei.
Feðgarnir blanda aftur ofan í fjöldann.
Gærdagurinn var kannski sá skásti.

Mannkyn lifir…
í nútíð.

Gamli vann í sex daga.
Hefur lítið síðan þá látið á sér bera.
Hann sá um upphafið.
Við um hitt.