VAR ÞETTA EKKI GAMAN?

Ég opnaði augun og sá heiðan himinn
Settist upp og reyndi að muna
Glerbrot
Rauðir blettir
Angan af þvagi og áfengi
Gubbpollur
Dúndrandi höfuðverkur
Drulla á jakkafötunum
Bjórflaska rúllaði eftir götunni

Ég greip um höfuðið og hugsaði
„Var þetta ekki gaman?“