Halló allir!

Ég er nýkomin með email hér á Huga en það fyrsta sem ég tók eftir hérna er hvað það er rosalega mikið af stafsetningarvillum alls staðar. Er ég sú eina sem tekur eftir þessu?
Það er ekki bara í ljóðunum sem fólk skrifar, heldur líka í athugasemdum frá stjórnendum! Kíkið þið aðeins á forsíðuna fyrir Ljóð: “…ritstuldur. Ljóðin meiga vera…”. Síðan hvenær er MEGA skrifað MEIGA? Mér finnst þetta skammarlegt.
Svör óskast.

Kveðja TheHalflingQueen.