Í nótt
er kyrrt og hljótt
og ég geng hér einn
í dimmri nótt.

Ég er einn,
aleinn
og bíð bara eftir því
að vera ekki lengur einn
í nótt.

En þá sá ég veru,
svarta á að sjá,
ég geng að henni
en sé engan þar.

Ég er aleinn
og græt.