Fíkn

Ég er háð þér meira en allt,
tilvera mín væri engin án þín.
Þú ættir að veita mér vímu
þú ættir að gleðja hverja einustu stund mína hjá þér
fá mig til að þrá þig
leika þér að tilfinningum mínum
láta mig grátbiðja um meira
öskra af sársauka,
því mig langar svo í þig.
En þú ert bara súrefni
og ég geng af þér gefnu.
Ég þolli ekki stavsedníngavilur