Þetta sem sagði að ég ekkert mætti
varð til að ekkert mig kætti
stakk djúpt að innan
og há-hágrætti.
Fyllir mig angist og sárri sorg
en myndar að innan þögult org.
Deyfir minn hug
og svertir sál
vísar orðum á bug
og kemur hatri í þögult mál.
Það eina sem var að mér hjá;
þessi djúpa, sára eftirsjá.