Hehe, ákvað að gera létt gaman-ljóð um ritstífluna mína.


Í rithöftum engist og dagurinn lengist,
hugmyndir koma svo sjaldan.
Langar að klára'en það gerir mig sáran,
að bið er til Orsakavalda.

Þarf að handskrifa og þarf að umskrifa,
það sem nú blaðið þekur.
Argur sig temur og telur að þremur,
áður en reiðin hann skekur.