Mig dreymir um að vera hún,
þessi sem þú horfir á úr fjarlægð,
brosir og hugsar: ,,Mín.”
Langar svo að komast algjörlega að þér,
að þú galopnir þig og ég fái að kynnast því sem aðrir fá ekki,
vil fá að vita drauma þína,
vonir þínar,
fá að uppfylla leyndustu þrár þínar.
Mig langar að sjá það sem er öðrum hulið;
vil fá að hlusta á það sem aðrir fá ekki að heyra,
vera sú eina sem má snerta þig,
finna fyrir líkama þínum með fingurgómunum,
strjúka svarta, mjúka hárið þitt,
koma við fallega, bjarta andlitið þitt,
horfa í djúpu, skæru augun þín
og eiga brosið þitt,
fallega fallega brosið þitt sem lýsir allt upp.
Ég elska að heyra röddina þína;
hitna að innan þegar ég heyri þig tala,
og get ekki beðið eftir því að heyra
glaðlega hláturinn þinn.
Ég elska persónuleikan þinn;
elska það hvað þú getur orðið skapstór
og æsist auðveldlega upp,
hvað þú getur þráast við um hlutina,
hvað þú getur rökrætt allt endalaust
og fengið alltaf þína hlið rétta hjá öllum,
nema mér.
Ég elska allt sem kemur upp úr þér,
hvort sem það er eitthvað bull eða
úthugsað;
fell kylliflöt yfir því sem þú skrifar,
les orðin aftur og aftur
og finn hvað ég verð alltaf hrifnari og hrifnari af þér.
Þú getur alltaf fengið mig til að hlæja,
getur alltaf látið mér líða betur,
gefur mér bestu ráðleggingarnar,
lætur mér finnst ég vera einhvers virði;
segir mér að ég sé nógu góð, þurfi ekki að vera betri.
Býst ekki við meiru af mér heldur en ég get gefið.
Ég elska öll litlu smáatriðin við þig;
nöguðu neglurnar á þér,
fæðingabletturinn hjá auganu á þér,
göngulagið þitt,
hvernig hendurnar á þér hreyfast þegar þú labbar,
hvernig röddin þín verður þegar þú æsist upp,
þegar skeggbroddarnir þínir strjúkast við andlitið á mér,
svipurinn á þér þegar ég geri þig orðlausan.
Ég elska að finna fyrir þér halda utan um mig;
elska að finna lyktina af þér,
hvað þú ert mjúkur
og hlýr.
Ég elska að finna varir þínar á mínum;
elska bragðið af þér,
langar allra helst að borða þig upp til agna.
Ég elska að hugsa um þig áður en ég fer að sofa,
hitna öll að innan,
og finna það hvað ég fell meira og meira fyrir þér.
Ég elska það hvað þú ert frábrugðinn öllum;
hvað þú ert sterkur persónuleiki,
þú sjálfur,
að það er enginn annar eins og þú.
Ég elska það þegar þú tjáir þig,
hvort sem það er með orðum,
líkamstjáningu,
eða skrifað;
elska það hvað þú ert tilfinnignæmur,
hvað þú getur útskýrt
og lýst öllu svo vel.
Ég elska það þegar aðrar stelpur dást af þér,
af því þú ert svo fallegur,
og ég hlæ með sjálfri mér:
,,Minn!”
Ég elska að gleyma mér við það að hugsa um þig,
ég er svo hugfangin af þér,
get ekki hugsað um neitt annað en þig;
bara þú,
enginn annar,
bara við tvö,
ein í heiminum, ekkert sem truflar.
Elska hvað ég mynda mikil tengsl við þig,
hvað það er auðvelt að tala við þig;
hversu gott er að finna að ég get treyst þér.
Ég elska að horfa út í myrkrið,
og átta mig því að ég er sjúklega,
yfirmig-uppfyrirhaus ástfangin af þér.
Elska að liggja með höfuðið ofan á þér,
hlusta á hjartsláttinn þinn,
og heyra hjartað mitt hvísla því að þér
að ég elska þig.