í draumi birtist mér engill, hughreysti mig.
í draumi birtist mér fjandinn, freistaði mín.
Engillinn sagði mér að vera sterk,
Fjandinn sagði mér að vera ég.

Í draumi birtist mér móðir, elskaði mig.
Í draumi birtist mér faðir, kenndi mér.
Móðirin sagði mér að vera traust,
Faðirinn sagði mér að vera skynsöm.

Í draumi birtist mér stúlka, skemmti mér.
Í draumi birtist mér drengur, heillaði mig.
Stúlkan sagði mér að halda í gleðina.
Drengurinn sagði mér að vera betri.


Í draumi birtist mér ég, féll fyrir þér
Í draumi birtist mér þú, bjargaðir mér.
Ég sagði mér að þú værir minn.
Þú sagðir mér, að ég væri ástin þín.