Án þín!
Ég eyði öllum kröftum núna í að hætta að hugsa um þig,
En auðvitað hætti ég ekkert að hugsa um þig ef ég reyni að hugsa ekki um þig.
Þetta er samt orðið betra núna, ég hugsa alveg endalaust um þig
En samt ekki eins og áður.
Ég veit að það er það sem þú vilt, að ég láti þig í friði
..gleymi þér.

Án þín er ekkert svona flókið
Án þín er ekkert svona hatað
Án þín er lífið allt skýrara
Án þín er lífið bara betra.

Stundum vildi ég að þu myndir flytja til Kína.
Eitthvert lengst í burtu og úr mínu lífi.
Nú er skólinn að byrja aftur og ég mun sjá þig á hverjum degi.
Ég ætla samt að vera sterk og láta þig ekki hafa áhrif á mig.
Þú sagðir það sjálfur, þér er sama um mig,
Svo nú færðu draum þinn uppfylltan.

Án þín er ekkert svona flókið
Án þín er ekkert svona hatað
Án þín er lífið allt skýrara
Án þín er lífið bara betra.

Og veistu, ég hugsa núna hvað ég var heppin að ***** kom
Hún bjargaði mér frá heimskunni í sjálfri mér.
Everything happens for a reason og þetta var sko sönnun á því
Ég myndi gera allt fyrir kærastann minn,
En þú átt það bara ekki skilið.
Svo nú er komin tími á að gleyma þér, láta þig í friði.

Án þín er ekkert svona flókið
Án þín er ekkert svona hatað
Án þín er lífið allt skýrara
Án þín er lífið bara betra.

Ég er búin að eyða heilu ári í þig
En aldrei fengið neitt til baka,
svo ég er hætt
Hætt að eltast við þig
Þu er horfinn úr lífi mínu
Fyrir fullt og allt

Án þín er ekkert svona flókið
Án þín er ekkert svona hatað
Án þín er lífið allt skýrara
Án þín er lífið bara betra.


fékk smá dramakast einn daginn, skrifaði niður allar mínar tilfinningar á blað..
ég vil engin skítakoment, varð bara að sýna e'rjum það og fá coment á það ;)