Datt í hug að send inn ljóð í fyrsta skipti. Þetta er bara eitthvað sem mér datt í hug um leið og ég samdi.


Ekkert í þessum heimi
hvorki líf mitt né sál,
hvorki sorg né gleði,
hvorki dauði né fæðing,
hvorki sársauki né sæla.

Ekkert í þessum heimi
getur haldið mér frá þér.

Þú sem alltaf ert svo glöð,
þú sem ekkert aumt mátt sjá,
þú sem alltaf sérð gott í öllu.

Þú sem ekki vilt elska mig,
ekki einu sinni sjá,
þú sem hunsar mig og treður á mér,
líkt og ég væri ósýnilegt lítið blóm.
Þú sem ekkert vilt með mig hafa,
þig ég elska.<br><br>Í Dark Age of Camelot:
Server: Percival
Realm: Midgard
Nafn: Gyndelthor
Race: Dwarf
Class: Skald
Level: 21