Annað ljóð eftir mig. Persónulega finnst mér það ekki eins gott og Ljóð um söknuð, en hver dæmir fyrir sig.


Döggin glitraði
í fyrsta geisla sólar
að morgni hins fyrsta dags.

Hins fyrsta dags
hinnar fyrstu ástar,
heimurinn nýr
og framandi,
hlýr og kunnuglegur,
lifandi
eins og lítið barn
sem stekkur út
og hverfur
inn í sumarið.



Takk fyrir mig :-)