Sumir sjá án þess að skynja,
þeir þrá að ná að finna.
Það sem á ávallt að skilja,
tár sem gufar upp til himna.

Hátt mun samviskan syngja,
djúpt í hjarta þess sem iðrast.
Lágt mun lygarinn þá hvísla,
ljúft mun ósatt satt virðast.