Bít í blóðugt páskaegg
með krossfestum manni
á toppnum.
Krýp á altari neysluhyggjunar,
bið toppskrautið fyrirgefningar
og bíð því súkkulaði.

Reis á þriðja eggi
aftur upp úr stólnum
og steig upp til hinna.
Í nafni Góu, Mónu og Nóa.
Amen.