Lítil bláeygð stelpa
situr saklaus í sandinum.
Lítil bláeygð stelpa
horfir forvitin á sjóinn;
flæða mjúklega yfir sandinn
& bleyta berar tær hennar.
Lítil bláeygð stelpa
hlær við kalda viðkomuna,
og þrýstir tánum í sandinn.
Lítil bláeygð stelpa
situr ein í sandinum
og heyrir skyndilega eitthvað.
Lítil bláeygð stelpa
situr saklaus í sandinum
og finnur kaldan hroll læðast.
Lítil bláeygð stelpa
fer að skjálfa í sandinum
og heyrir vængjaþyt.
Lítil bláeygð stelpa
horfir saklausum augum til himins,
og sér hvítan örn nálgast.
Lítil bláeygð stelpa
verður hugsað til móður sinnar
og þrýstir sandinum að sér.
Lítil bláeygð stelpa
finnur klær krækjast um sig
og sér augu sem biðja hana um að verða sér samferða.
Lítil bláeygð stelpa
er hrifsuð á brott,
burt frá sandinum.
Lítil bláeygð stelpa
liggur útklóruð og blóðug í sandinum
og bíður eftir móður sinni.
Lítil bláeygð stelpa
er rifin á fætur
og teymd heim.
Lítil og báeygð stelpa
fær skammir fyrir útlit sitt
og þegar hún byrjar að gráta
fær hún sand í augun.