bak við bláa dropa Milli þráða ljóssins
lita sólgulls
blárra dropa
regnsins,
svörtustu skýja
Undir bylgjum augnloka
þar sem árnar einast
við haf

Bak við hugsanir
sem við skiljum aldrei
Innan vara
kápulaust
án orða
í burtu
Lauf í maí