Á laufum trjánna
sefur perlað regn
eins og minningar mínar

ein af annarri renna
perlurnar í lófa minn
og ég sýp á

ljúft líða minningarnar
til mín á ný
eins og perlað regn
sem fellur af laufum trjánna