Með hverju orði kemur spori eftir nál,
sem tvinnar langa hnúta í gegnum mína sál.
Brotin, afmynduð,
skroppin og teygð.
Ég hef dæmt mig í eilífa glötun og feygð
Ég bjó þig til en þú ert ekki til
Þú ert aðeins draumur með kaldan yl
Ég gleymi draumnum og geng hálfdreymin inn,
í köldu auðnina sem holar líkama minn.